Um okkur
Fjölskyldufyrirtæki síðan 1987
Sagtækni ehf er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi 1987 og er eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði á Íslandi.
Sagan
1987
Sagtækni stofnuð
Stofnandi fyrirtækisins er Vilhelm Jónsson og starfsemin hófst árið 1987.
Um aldamótin
Nýtt iðnaðarhúsnæði
Fyrirtækið flutti í nýtt iðnaðarhúsnæði um aldamótin.
1. desember 2007
Núverandi eigendur taka við
Aðalsteinn Sigurhansson og Helga Elísabet Kristjánsdóttir taka við rekstri Sagtækni.
2013
Ný kynslóð rafmagnssaga
Sagtækni var leiðandi í að taka í notkun nýja kynslóð af rafmagnssögum fyrir steypusögun frá Husqvarna, í samstarfi við MHG ehf. Sagirnar voru keyptar á sýningu í Þýskalandi 2013 þar sem þær voru fyrst kynntar.
2015
HIS steypusögun sameinast Sagtækni
Sagtækni kaupir HIS steypusögun, rótgróið fyrirtæki á sama markaði, sem sameinast rekstri Sagtækni. Með því styrktist Sagtækni enn frekar bæði í tækjabúnaði, breidd viðskiptavina og þekkingu.
Fyrirtækið hefur aldrei skipt um kennitölu vegna rekstrarerfiðleika.
Viðskiptavinirnir
Í hópi viðskiptavina eru nær öll stærri bygginga- og verktakafyrirtæki landsins, öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, öll stærri orkufyrirtæki landsins, verkfræðistofur o.fl.
Við þjónustum einnig einstaklinga í smærri og stærri verkum.
Stefna og markmið
Stefna Sagtækni er að sinna viðskiptavininum vel, á sem hagkvæmastan hátt og viðhalda góðu orðspori með þjónustulund, þekkingu og snyrtimennsku.
Þessu markmiði náum við best með góðum reynslumiklum mannskap og öflugum góðum tækjabúnaði.



