Gólfhitafræsing og fræsun fyrir lagnir
Gólfhitafræsun með eða án niðurlagðra röra, í samstarfi við pípulagningamenn.
Við tökum að okkur gólfhitafræsun, með eða án niðurlagðra röra. Við erum í samstarfi við pípulagningamenn sem tengja og klára verkið.
Áður en fræst er slípum við gólfin og fjarlægjum lím. Við flotum yfir og bjóðum einnig slípun eftir flotun.
Vinnan er nánast ryklaus því við notum öflugar ryksugur.
