GÆÐI · ÞEKKING · ÞJÓNUSTA
Sagtækni ehf er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi 1987 og er eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði á Íslandi. Tækjabúnaður og þekking okkar hentar í flest verkefni, sama hvort verkið er stórt eða smátt.
Við komum á staðinn og gerum föst verðtilboð — þér að kostnaðarlausu.
Þjónusta okkar
Frá einu kjarnabori upp í niðurrif og styrkingar á burðarvirki.
- Steypusögun og múrbrotSögun og brot í steypu, vikurveggi, malbik og klappir — allt frá smáverkum upp í stórar framkvæmdir.Nánar
- Styrkingar á burðarvirkiSmíði og uppsetning stálstyrkinga þegar stór göt eru söguð eða veggir fjarlægðir.Nánar
- KjarnaborunKjarnaborun frá 12 mm upp í 760 mm í þvermál — í loft, gólf og veggi.Nánar
- Vélslípun — gólf- og veggjaslípunNánast ryklaus slípun á gólfum, veggjum og loftum — þar á meðal myglusveppaslípun.Nánar
- Múrbrot og niðurrifMúrbrot og niðurrif innan- og utanhúss — förgun einnig í boði.Nánar
- Gólfhitafræsing og fræsun fyrir lagnirGólfhitafræsun með eða án niðurlagðra röra, í samstarfi við pípulagningamenn.Nánar
- Glugga- og hurðaísetningarSögun fyrir gluggum og hurðum í öllum stærðum — frá sögun til ísetningar.Nánar
- Almennt fasteignaviðhald og breytingar á húsnæðiBreytingar og viðhald fasteigna, niðurrif innan- og utanhúss, rafstöðvar og kerrur til leigu.Nánar
Síðan 1987
Fjölskyldufyrirtæki með óbrotna sögu
Sagtækni hefur aldrei skipt um kennitölu vegna rekstrarerfiðleika. Núverandi eigendur, Aðalsteinn Sigurhansson og Helga Elísabet Kristjánsdóttir, tóku við rekstrinum 1. desember 2007.
Lesa söguna- Gæði
- Öflugur og góður tækjabúnaður í öllum stærðum verkefna.
- Þekking
- Góður og reynslumikill mannskapur með áratuga reynslu.
- Þjónusta
- Þjónustulund og snyrtimennska á hverju verksvæði.
Kjarnaborun 12–760 mm
Mikill lager af kjarnaborum og borvélum, frá 12 mm upp í 760 mm í þvermál. Við borum í loft, gólf og veggi.
Fyrri verk
Dæmi um verk sem Sagtækni hefur unnið.

Sagað fyrir nýjum gluggum

Foss hótel Patreksfjörður

Viðbygging fjarlægð

Unnið að stálstyrkingum

Sögun

Styrktarbita komið fyrir eftir sögun
Viðskiptavinirnir
Í hópi viðskiptavina eru nær öll stærri bygginga- og verktakafyrirtæki landsins, öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, öll stærri orkufyrirtæki landsins, verkfræðistofur o.fl. Einnig þjónustum við einstaklinga í smærri og stærri verkum.
